VG og D geta sameinast um að gæta hagsmuna útgerðarinnar

Það blasir við að Vinstri grænir og Sjálfstæðismenn geta sameinast um að verja hagsmuni útgerðarinnar í ríkisstjórn. Útgerðin veit að hún getur varist sköttum með bókhaldsbrellum. En uppboð á kvóta og markaðsleið væri upphafið að endalokum gjafakvóta. Þessir flokkar eru báðir ágætlega meðvitaðir um það og munu berjast gegn uppboðum með kjafti og klóm.

Kannski munu þessir flokkar færa okkur áfram sovéskan áætlanabúskap í úthlutun kvóta?


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn nær en Viðreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagkvæmni myndi þvert á móti aukast með fiski á markað

Einfaldlega vegna þess að fiskvinnslur sem kaupa fisk á markaði geta og hafa alltaf greitt miklu hærra verð en aðrar vinnslur með eigin útgerð.

Alveg er sama hversu fullyrðingin um hagkvæmni sameinaðrar vinnslu og útgerðar er endurtekin oft, hún alltaf jafn röng.

Þetta er í raun sama röksemdafærsla og Sovétmenn notuðu til að réttlæta áætlanabúskapinn sinn. Þeir væru að að spara sér kostnaðinn sem fylgdi markaðinum. Sem er í sjálfu sér alltaf rétt þegar horft er á eitt fyrirtæki en óhagkvæmt fyrir heildina.

Annað dæmi væri ef vöruheildsala og smásala væri á sömu hendi, þá þyrfti smásalan ekki að borga markaðsverð fyrir sín aðföng, heildsölur spöruðu sér markaðssetningu. Fínt dæmi fyrir hvert fyrirtæki um sig þegar öðrum væri meinað að komast inn í greinina. En ekki fyrir heildina.

Það er með ólíkindum að vestrænir hagfræðingar fáist til að mæla þessu bulli bót.


mbl.is Vill ekki allan fisk á markað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband